Nýjast á Local Suðurnes

Fullur ferðamaður á fleygiferð fékk háa sekt

Ferðamaður sem stöðvaður var á Reykjanesbraut þurfti að greiða tæplega 300 þúsund krónur í sekt fyrir brot sín, en hann var gripinn undir áhrifum áfengis á 138 kílómetra hraða.

Þá mældist annar erlendur ferðamaður á 144 kílómetra hraða, einnig á Reykjanesbraut. Hámarkshraði þar er 90 kílómetrar á klukkustund og báðir hinir brotlegu því rækilega yfir honum, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Tveir ökumenn framvísuðu jafnframt fölsuðum ökuskírteinum. Á annan tug ökumanna voru, auk ofangreindra, kærðir fyrir of hraðan akstur.