Nýjast á Local Suðurnes

Frumkvöðlar opna jólaverslunargötu í Eldey

Fimmtudaginn 10. desember næstkomandi munu frumkvöðlar í Eldey opna jólaverslunargötu í húsnæði sínu Eldeyjarstræti en þar munu gestahönnuðir og handverksfólk kynna hönnun sína auk þess sem vinnusmiðjur verða opnar. Húsið opnar kl. 18:00 og er opið til kl. 21:00.

Mýr Design, Gull og hönnun, Agnes Design og Ljósberinn eru á meðal þeirra fjölmörgu sem verða með vörur sínar til sýnis og sölu á þessu síðasta opna kvöldi í Eldey fyrir jól.

Hér er gott tækifæri fyrir Suðurnesjamenn til að styðja við bakið á frumkvöðlum og eru allir hvattir til þess að kynna sér fjölbreytta framleiðslu og njóta aðventunnar með hönnuðum, handverksfólki og frumkvöðlum.

Eldey frumkvöðlasetur er að Grænásbraut 506, Ásbrú.