sudurnes.net
Fríar sundæfingar fyrir fötluð börn og ungmenni í Grindavík - Local Sudurnes
Íþróttasamband fatlaðra í samstarfi við sundþjálfarann Magnús Má Jakobsson munu bjóða upp á endurgjaldslausar sundæfingar í Grindavíkurlaug alla föstudaga út þetta skólaár. Æfingarnar hefjast næstkomandi föstudag, 19. febrúar og verða frá kl. 16.30-17.30. Æfingarnar eru fyrir fötluð börn og ungmenni á grunnskólaaldri en Magnús verður með aðstoðarmann á æfingunum. Við hvetjum sem flesta til að koma og nýta sér þetta glæsilega íþróttatilboð undir handsleiðslu reynds þjálfara, segir í tilkynningu á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Fjölmargir einstaklingar úr röðum fatlaðra sundmanna hafa borið hróður Íslands víða í alþjóðlegum keppnum á borð við Kristínu Rós Hákonardóttur, Ólaf Eiríksson, Jón Margeir Sverrisson og marga fleiri. Nánari upplýsingar um æfingarnar má nálgast hjá Magnúsi í síma 660-8809 eða á skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra á if@ifsport.is og í síma 5144080. Meira frá SuðurnesjumÁlagsgreiðslur til starfsfólks skóla ekki í boðiForeldrar kynni sér uppfærða viðbragðsáætlunBörn hafa forgang við notkun sparkvallaIsavia styrkir björgunarsveitirnar veglega – Setja upp búnað til að bregðast við hópslysumFékk tundurskeyti í trolliðÓþekktu milljarðamæringarnir kaupa fasteignir á Ásbrú fyrir 5 milljarða krónaOpnunartími skemmtistaða í Reykjanesbæ verður stytturÞjónustuskerðing á HSS í sumarLeigufélag vill byggja allt að 400 íbúðir á SuðurnesjumMál gegn fyrrum yfirlögfræðingi lögreglunnar á Suðurnesjum fellt niður