sudurnes.net
Fresta varnagarðavinnu við möstur - Local Sudurnes
Ákveðið hefur verið að fresta varnargarðavinnu við rafmagnsmöstur fram yfir áramót. Ef virkni fer af stað aftur verður þó brugðist hratt við, segir í tilkynningu frá Landsneti. Í dag verðum við á slóðum Svartsengislínu með Verkís Verkfræðistofa að skoða aðstæður og undirbúa varnir á þremur möstrum sem standa næst varnargarðinum við Svartsengi, segir í tilkynningunni. Hugmyndin er að verja þau með leiðigörðum, sem er ætlað að beina hraunstraumi frá þeim. Efnið í garðana er tiltækt á staðnum og reiknum við með að klára vinnuna í kringum möstrin fyrir helgi. Í framhaldi verður skoðað að færa möstrin til en sú aðgerð tekur lengri tíma. Það er EFLA verkfræðistofa sem hannar varnargarðana. „ Við munum í dag hefja vinnu við að verja nokkur möstur í Svartsengislínu, möstur sem standa fyrir utan varnargarðana og eru mögulega í hættu miðað við hraunflæðislíkön. Við reiknum með að klára þetta hratt og örugglega fyrir helgi. Á sama tíma erum við að skoða leiðir til að færa hluta Svartengislínunnar á svæði sem er öruggara gagnvart hraunflæðinu.“ segir Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets. Meira frá SuðurnesjumTekin með þúsundir tafla af lyfseðilsskyldum lyfjum í nærbuxunumSkemmdarvargar gjöreyðilögðu bifreið í ReykjanesbæErlent fyrirtæki ræður yfir efnissölumarkaði á Suðurnesjum – Hagstæður samningur við ríkiðVilja [...]