Fresta skoðunum hjá ung- og smábarnavernd
Öllum skoðunum í 2 ½ árs skoðanir og 4 ára skoðanir hjá Ung- og smábarnavernd HSS hefur verið frestað.
Þetta á sömuleiðis við hjá þeim sem eiga bókað í 10 mánaða skoðanir næstu fimm vikurnar. Síðastnefndi hópurinn mun fá tíma í 12 mánaða skoðun.
Þá verður tímum í 8 og 12 mánaða skoðun einnig frestað og munu aðstandendur þeirra fá skilaboð í gegnum Heilsuveru.is.
Ef foreldrar hafa áhyggjur þá er velkomið að hafa samband við HSS í síma 422-0500.
Þau sem eiga bókaðan tíma og eru að mæta, eru vinsamlega beðin um að aðeins annað foreldrið fylgi barninu í skoðun og að þau bíði í bíl sínum hér fyrir utan, en ekki inni á biðstofu, eftir að starfsfólk HSS hringi og láti vita þegar komið er að þeim í skoðun.
Nánari upplýsingar má finna á Facebook-síðu HSS eða á vefsíðu stofnunarinnar.