Nýjast á Local Suðurnes

Frekari tilslakanir á heimsóknarreglum sjúkradeildar HSS

Breytingar verða á fyrirkomulagi heimsókna til sjúklinga á D-deild (sjúkradeild) HSS frá og með deginum í dag, 9. júní 2020.

Heimsóknir á deildina verða leyfðar kl. 16-19 með ákveðnum skilyrðum:

• Einum aðstandandanda á dag (og fylgdarmenni ef nauðsyn krefur) er heimilt að heimsækja inniliggjandi sjúklinga
• Hver heimsókn að hámarki í eina klst.
• Starfsfólki er heimilt að vísa fólki frá ef fleiri en einn gestur mætir í heimsókn (fylgdarmaður undanskilinn)

Undantekningar frá þessum heimsóknarreglum, t.d. hvað varðar fjölda gesta eru ávallt gerðar í samráði við starfsfólk deildarinnar og er þá tekið mið af aðstæðum hverju sinni.

Sem fyrr mega gestir ekki koma í heimsókn ef þeir:

a) eru í sóttkví
b) eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku)
c) hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift
d) eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.)

Ef smit vegna COVID-19 aukast aftur, eða smit vegna annarra smitsjúkdóma, munu tilslakanir á heimsóknarbanni ganga til baka og reglur verða hertar á ný.