sudurnes.net
Framkvæmdum við 1200 metra Mike lokið - Local Sudurnes
Ístak lauk nýverið við verkið Mike á Keflavíkurflugvelli fyrir Isavia, en um er að ræða akbraut sem tengir saman flughlað flugstöðvarinnar og flugbraut. Akbrautin er fyrsta viðbót Isavia við flugbrautarkerfið en allar aðrar viðbætur voru lagðar af NATO eða Bandaríkjaher. Akbrautin er engin smásmíði þar sem hún er 1200 metra löng og 35 metrar á breidd. Til samanburðar myndi malbikið duga til að malbika 35 fótboltavelli. Kostnaður við akbrautina eru tæpir 4 milljarðar króna. Framkvæmdir við Mike hófust árið 2022 en þeim lauk í sumarbyrjun 2023. Markmiðið með framkvæmdinni er að bæta flæði og auka öryggi flugbrautakerfisins. Fyrsta flugvélin sem ók eftir Mike var Fagradalsfjall, vél af gerðinni Boeing 737-Max-8 vél frá Icelandair sem var á leiðinni frá Keflavíkurflugvelli til Oslóar. Meira frá SuðurnesjumNýjasta Airbus A350-1000 lenti á Keflavíkurflugvelli – Sjáðu myndirnar!Nota veðurskilyrðin til æfinga á aðflugi í HvassahrauniFrisbígolfvellir rísa í ReykjanesbæReykjanesbær skoðar staðsetningar undir frisbígolfvöllEin stærsta lúxussnekkja heims liggur við festar í ReykjanesbæNýtt flugskýli Icelandair skapar á annað hundrað störfBirta fyrstu myndirnar af gosinuHættustig á Keflavíkurflugvelli vegna bilunar í hreyfli á Boeing 777 flugvélFánum skreytt Iron Maiden vélin klár í Frakkland – Myndir!Nóg að gera hjá björgunarsveitum