sudurnes.net
Framkvæmdir við gerð hringtorga á Reykjanesbraut hefjast í næstu viku - Local Sudurnes
Í gær var undirritaður samningur vegna framkvæmda við tvenn hringtorg á Reykjanesbraut í sumar, annars vegar á mótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar og hins vegar á mótum Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar. Útboð fór fram fyrr í sumar og var verktakafyrirtækið Ístak lægstbjóðandi. Tilboð Ístaks hljóðaði upp á rúmar tvö hundruð og fimmtán milljónir króna fyrir bæði hringtorgin. Framkvæmdir hefjast í næstu viku og eru áætluð verklok þann 15. september næstkomandi. Ökuhraði verður færður niður í 50 km á klukkustund á meðan á framkvæmdum stendur og því má búast við einhverjum töfum á þessum vegkafla í sumar. Hringtorgin eru hönnuð sem tvöföld hringtorg og verður ytri hringur fyrst tekinn í notkun og er þá hægt að stækka hringtorgið með innri hring þegar farið verður í tvöföldun Reykjanesbrautar. Meira frá SuðurnesjumKvartað undan aðstæðum við hringtorgsframkvæmdirGrindvíkingar hefja leik í Pepsí-deildinni á heimavelli gegn StjörnunniTafir á framkvæmdum við hringtorg á Reykjanesbraut – Þjóðbraut lokuð við SmiðjuvelliHringtorg á Reykjanesbraut boðin út – Isavia aðili að útboðinuÍAV bauð best í vegtengingu við HafnavegHeimilt verður að rífa nokkur hús við Hafnargötu samkvæmt nýju deiliskipulagiHnefaleikafélag Reykjaness 15 ára – Fagna tímamótunum með boxkvöldi á LjósanóttHluti grunnskólabarna fær strætókort án endurgjaldsLést eftir að hafa kastað sér úr leigubíl á ferðGripinn með tæplega [...]