sudurnes.net
Fræðir foreldra um skaðsemi fíkniefna - Local Sudurnes
Sigvaldi Arnar Lárusson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, hefur að undanförnu heimsótt nemendur og frætt þá um skaðsemi og afleiðingar fíkniefnaneyslu. Sigvaldi mun flytja fyrirlestur um sama efni fyrir foreldra næstkomandi mánudag. Sigvaldi mun meðal annars sýna foreldrum og kennurum það efni sem hann hefur sýnt nemendum að undanförnu auk annarrar fræðslu. Gestir á fundinum verða fjölskylda Einars Darra úr ég á bara eitt líf hópnum. Fyrirlesturinn er opinn öllum foreldrum. Fyrirlesturinn verður haldinn í fyrirlestrarsal Fjölbrautaskóla Suðurnesja næstkomandi mánudag, 25. mars, og hefst hann klukkan 17 og stendur til um klukkan 18:30. Verkefnið er samstarfsverkefni Samtakahópsins, heilsueflandi samfélags í Reykjanesbæ, FFGÍR og foreldrafélags FS. Meira frá SuðurnesjumLjúfir tónar og góðgæti á Erlingskvöldi Bókasafns ReykjanesbæjarÓveður gæti haft áhrif á flugGætu þurft að greiða allt að hálfri milljón á dag fyrir stæði við flugstöðinaLeikskóla lokað vegna smitaÖllum bankaútibúum á Suðurnesjum lokaðSkerðing hefur umtalsverð áhrif á sveitarfélögin á SuðurnesjumEfna til nafnasamkeppni fyrir viðburðatorg – Innblástur í sjósókn og sjávarútveg skilyrðiReykjanesbraut lokað á milli 12 og 17 á föstudag12 milljónir króna í boði frá LandsvirkjunHinsegin vika í Grindavík