sudurnes.net
Fótbrotnaði í fjórhjólaslysi - Local Sudurnes
Erlend kona slasaðist um hvítasunnuhelgina þegar fjórhjól, sem hún ók eftir malarslóða við borholuna í Eldvörpum á Reykjanesi valt. Konan var í hópi ferðafólks sem var með leiðsögumann. Lögreglan á Suðurnesjum fór á staðinn og kom þá í ljós að konan virtist hafa misst vald á fjórhjólinu þegar hún var að aka niður aflíðandi brekku. Að sögn virtist hún hafa ekið of utanlega í vegabrún með þeim afleiðingum að hjólið valt og hún kastaðist af því. Sjúkralið var kallað á vettvang og virtist allt benda til að konan hefði fótbrotnað við óhappið. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Meira frá SuðurnesjumRotaðist við að færa þakplötuBílvelta við Kúagerði – Töluvert um umferðaróhöpp á SuðurnesjumFerðamenn slösuðust í flugstöðinniFluttur á Landspítala eftir reiðhjólaslysBílvelta á Reykjanesbraut – Sofnaði undir stýriVar lofað milljón fyrir kókaínsmyglFlutningabíll valt á hliðina á SandgerðisvegiVankaður og skorinn á höndum eftir bílveltuStöðvaður með allt í ólagiTorfæruhjól fældi hest og knapi féll af baki