sudurnes.net
FöstudagsÁrna yrði hent öfugum upp úr lauginni með sína skálastærð - Local Sudurnes
Þessi vika hefur í fréttalegu tilliti verið erfið. Áherslan hefur að sjálfsögðu verið á eitt mál sem er mjög eðlilegt. Hvarf Birnu Brjánsdóttur er að þróast í að vera eitt skelfilegasta sakamál síðustu ára og samhugur þjóðarinnar er hjá fjölskyldu hennar. Ég er gagntekin af þessu máli en ætla ekki að tjá mig um það, nema að ég er virkilega stoltur af Lögreglunni, Grími Grímssyni og björgunarsveitunum okkar. Lögreglan hefur unnið málið af mikilli fagmennsku, skipulagi og aga og hefur sýnt og sannað hversu megnug hún er. Ég tek ofan fyrir Lögreglu og bjórgunarsveitum. Mikið væri nú skemmtilegt ef Putin og Thrump héldu leiðtogafund í Reykjavík. Þarna eru að ferðinni miklar mannvitsbrekkur og sannir mannvinir. Ég legg til að slegið verði upp málþingi um réttindi hinsegin fólks og þeir félagar taki þátt í pallborðsumræðum um málefnið. Það er örugglega mikið sem liggur á hjarta Putins um málið. Þá er ég reiðubúinn til að leggja mitt að mörkum og fara með þá félaga á gay-djamm í miðborginni og taka snúning með þeim á Kíki bar. Voðaleg læti eru þetta yfir brjóstum á Akranesi. Voðaleg viðkvæmni er þetta. Fólk eyðir löngum stundum fyrir framan viðtækin þar sem endalausar kynlífssenur rúlla allan sólarhringinn. [...]