sudurnes.net
Forvarnarfulltrúi fyrir samfélag í sókn! - Local Sudurnes
Reykjanesbær er heilsueflandi samfélag og þátttakandi í verkefni Landlæknis þar að lútandi. Heilsueflandi samfélag leggur áherslu á að heilsa og líðan íbúa sé höfð í fyrirrúmi í allri stefnumótum og á öllum sviðum. Áhrifaþættir heilsu og vellíðunar eru fjölmargir en segja má að forvarnir skipi þar veigamikinn sess. Forvarnir snúast um að efla heilbrigði, koma í veg fyrir sjúkdóma og að beita viðeigandi íhlutun til að draga úr sjúkdómsþróun og fylgikvillum. Forvarnarfulltrúi Samfylking og óháðir ætla að ráða forvarnarfulltrúa til að stýra og leiða forvarnarstarf í bæjarfélaginu. Markmið forvarnarfulltrúa væri að vera í góðum tengslum við alla hlutaðeigandi aðila, greina þörfina hverju sinni og skapa forvörnum enn ríkari sess í öllu starfi er snýr að börnum og ungmennum. Forvarnarfulltrúa væri m.a. ætlað að; Vinna að stefnumótun í forvarnarmálum, halda utan um og uppfæra forvarnarstefnu Reykjanesbæjar. Sameina markmið, áherslu og stefnu forvarna í öllum skólum Reykjanesbæjar. Efla þátt forvarna og skapa þeim sess innan fræðsluráðs og íþrótta- og tómstundaráðs. Stýra starfi SAMTAKA hópsins. Vinna í nánu samstarfi við yfirvöld, félagasamtök, félagsmiðstöðvar, skóla og íþróttafélög. Sitja fundi með ungmennaráði. Gera kannanir og greina útgefnar skýrslur og önnur gögn. Starf forvarnarfulltrúa hefur verið starfrækt hjá fjölmörgum sveitarfélögum um árabil með ágætum árangri. Tryggjum [...]