Forvarnarfulltrúi fyrir samfélag í sókn!
Reykjanesbær er heilsueflandi samfélag og þátttakandi í verkefni Landlæknis þar að lútandi. Heilsueflandi samfélag leggur áherslu á að heilsa og líðan íbúa sé höfð í fyrirrúmi í allri stefnumótum og á öllum sviðum. Áhrifaþættir heilsu og vellíðunar eru fjölmargir en segja má að forvarnir skipi þar veigamikinn sess.
Forvarnir snúast um að efla heilbrigði, koma í veg fyrir sjúkdóma og að beita viðeigandi íhlutun til að draga úr sjúkdómsþróun og fylgikvillum.
Forvarnarfulltrúi
Samfylking og óháðir ætla að ráða forvarnarfulltrúa til að stýra og leiða forvarnarstarf í bæjarfélaginu. Markmið forvarnarfulltrúa væri að vera í góðum tengslum við alla hlutaðeigandi aðila, greina þörfina hverju sinni og skapa forvörnum enn ríkari sess í öllu starfi er snýr að börnum og ungmennum. Forvarnarfulltrúa væri m.a. ætlað að;
- Vinna að stefnumótun í forvarnarmálum, halda utan um og uppfæra forvarnarstefnu Reykjanesbæjar.
- Sameina markmið, áherslu og stefnu forvarna í öllum skólum Reykjanesbæjar.
- Efla þátt forvarna og skapa þeim sess innan fræðsluráðs og íþrótta- og tómstundaráðs.
- Stýra starfi SAMTAKA hópsins.
- Vinna í nánu samstarfi við yfirvöld, félagasamtök, félagsmiðstöðvar, skóla og íþróttafélög.
- Sitja fundi með ungmennaráði.
- Gera kannanir og greina útgefnar skýrslur og önnur gögn.
Starf forvarnarfulltrúa hefur verið starfrækt hjá fjölmörgum sveitarfélögum um árabil með ágætum árangri.
Tryggjum öllum nemdnum forvarnarfræðslu
Í dag fer SAMTAKA-hópurinn fyrir forvarnarstarfi í Reykjanesbæ, undir stjórn íþrótta- og tómstundafulltrúa. Þessi hópur hefur unnið öflugt og flott starf. Engu að síður er fyrirkomulag grunnskóla, íþróttafélaga og félagasamtaka þannig að sótt er um styrk í forvarnarsjóð íþrótta- og tómstundaráðs fyrir einstökum forvarnarverkefnum.
Vissulega geta áherslur verið mismunandi á milli skóla en oftast eiga þessi verkefni erindi til allra okkar barna og ungmenna. Skólar og foreldrafélög þurfa að hafa ákveðið svigrúm til að sækja í sjóð sem þennan en með starfi forvarnarfulltrúa er hægt að tryggja að allir nemendur í skólum Reykjanesbæjar fái sömu grunnfræðslu eins og fræðslu um fíkniefni.
Snemmtæk íhlutun
Við sem samfélag berum ábyrgð á lífi og heilsu barna okkar. Flest þekkjum við máltæki „Of seint er að byrgja bruninn þá barnið er dottið ofan í”. Með snemmtækri íhlutun og öflugu forvarnarstarfi getum við komið í veg fyrir slæma eða erfiða lífsreynslu barna okkar og ungmenna sem hafa neikvæð áhrif á heilsu þeirra og líðan. Það á að vera markmið okkar og skylda. Með þessu skrefi, að ráða í starf forvarnarfulltrúa, erum við einhuga að því að gera enn betur í þessum málaflokki því besta meðferðin eru forvarnir. Það er hagur okkar allra, hagur fyrir samfélag í sókn!
Guðný Birna, Jóhanna Björk, Jón Haukur og Þórdís Elín skipa sæti á S-lista Samfylkingar og óháðra.