Nýjast á Local Suðurnes

Forseti og varaforseti vélhjólaklúbbs fengu ekki að koma inn í landið

Þremur meðlimum vélhjólaklúbbsins Cobra, sem er stuðningsklúbbur MC Bandidos, var frávísað við komuna til landsins sl. fimmtudag. Mennirnir kváðust vera forseti, varaforseti og ritari  Cobra mótorhjólasamtakanna og komu þeir frá Kaupmannahöfn. Í farangri þeirra fundust merki og fatnaður merkt Cobra.

Lögreglan á Suðurnesjum gerði þeim grein fyrir því að vegna tengsla Cobra við vélhjólaklúbbinn Bandidos sem skilgreind eru  sem skipulögð glæpasamtök, fengju þeir ekki að fara inn í landið. Þeir voru því vistaðir á lögreglustöð á landamærum þar til þeir fóru aftur til síns heima.