sudurnes.net
Fórnaði úlpunni fyrir gæs með frosinn gogg - Local Sudurnes
Lögreglunni á Suðurnesjum barst nokkuð óvenjuleg tilkynning frá vegfarenda sem hafði rekist á gæs með frosinn gogg. Vegfarandinn lagði til hlýja úlpu sem gæsinni var pakkað inn í. Lögreglumenn komu svo gæsinni í skjól á lögreglustöð á meðan þess er beðið að goggurinn þiðni. Lögregla greindi frá þessu óvenjulega útkalli á Facebook-síðu sinni: Við munum eftir frostavetrinum mikla 2023 en þá fundum við þessa öðlings gæs á vappi. Eitthvað var henni kalt greyinu og var hún með gogginn frosinn lokaðan. Árvökull vegfarandi sem lét okkur vita lagði til þessa fínu úlpu sem henni var svo pakkað í og færð inn í hlýjuna. Nú kúrir hún á gólfinu hjá okkur og bíður þess að goggurunn þiðni.Hún biður að heilsa öllum og minnir fólk á að klæða sig vel. Meira frá SuðurnesjumLét sig húrra í átt að gosinu með svifvængLögregla kölluð til þegar fjöldi flugfarþega neituðu að færa sigInnbrotsþjófar handteknir á hlaupumTelja sig vita hvar franska stúlkan er niðurkominMest lesið á árinu: Leoncie lét starfsfólk Reykjanesbæjar heyra þaðÞarf að tilkynna sig til lögreglu þrisvar í viku eftir þjófnað á sígarettumRukka notendur náist ekki að losa sorpílátMinningarmót um Ragnar Margeirsson verður haldið í 12. sinn um helginaLét sig hverfa með reyktan silung og [...]