sudurnes.net
Foreldrum með veikt barn þvælt á milli stofnanna - Fengu að lokum þjónustu á HSS - Local Sudurnes
Foreldrar fimm mánaða gamals barns fóru í einu og öllu eftir þeim ráðleggingum sem þeim voru gefnar eftir að barnið veiktist á laugardag. Suðurnes.net greindi frá því á laugardagskvöld að barninu hafi verið meinaður aðgangur að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) vegna einkenna veikindanna (sem voru flensueinkenni), en barnið fékk að lokum þjónustu á HSS, en þó ekki fyrr en eftir að hafa verið sent til Reykjavíkur eftir símtal í þjónustunúmer landlæknis vegna Covid-19 veirunnar. Móðir barnsins rekur sögu fjölskyldunnar á vef Mannlífs, en þar kemur fram að barnið hafi fengið þjónustu á HSS eftir nokkura klukkutíma þvæling á milli sjúkrastofnanna á höfuðborgarsvæðinu. Í frétt Mannlífs kemur fram að þvælingurinn hafi tilkomið vegna starfa föður barnsins á Keflavíkurflugvelli þar sem hann hefur samskipti við flugfarþega. Frá ritstjóra: Rétt er að taka fram að við vinnslu fyrri fréttar um málið, þar sem fram kemur að barnið hafi ekki fengið þjónustu á HSS, að rætt var við tvo fjölskyldumeðlimi sem höfðu sömu sögu að segja, þá sem birt var í fyrri frétt. Þá er einnig rétt að fram komi að starfsmenn HSS höfðu samband eftir birtingu fréttarinnar og sögðu hana ranga. Viðkomandi starfsmenn gátu/máttu eða vildu þó ekki gefa upplýsingar um hvað væri rangt í fréttinni, [...]