sudurnes.net
Foreldrar í Reykjanesbæ ánægðastir með leikskólastarfið - Local Sudurnes
Reykjanesbær skipar sér í efsta sætið þegar kemur að ánægju foreldra með leikskólann sinn. Þetta kemur fram í könnun Skólapúlsins sem framkvæmd var á vormánuðum. Niðurstöðurnar staðfesta að það er verið að vinna mjög gott og metnaðarfullt starf í leikskólum bæjarins. Í könnun Skólapúlsins var hugur foreldra til ýmissa þátta í leikskólastarfinu kannaður. Þegar spurt var um hvort foreldrar væru ánægðir með leikskólann sögðust 92,5 prósent foreldra leikskólabarna í Reykjanesbæ vera ánægðir með leikskólann sinn. Hlutfallið á landsvísu er 83,1 prósent. Alls sautján sveitarfélög tóku þátt í könnuninni. Að sögn Ingibjargar Bryndísar Hilmarsdóttur leikskólafulltrúa Reykjanesbæjar eru stjórnendur og kennarar þakklátir þessu trausti og þeim velvilja sem fram kemur í könnuninni. Kannanir sem þessar hafa verið framkvæmdar á fjögurra ára fresti og eru liður í innra mati leikskólastarfsins, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ. Leikskólar og sveitarfélög sem taka þátt geta borið niðurstöður sínar saman við aðra leikskóla á landsvísu. Þannig má skoða styrkleika skólastarfsins og sóknarfæri. Meira frá SuðurnesjumHSS neðarlega á lista í vinnumarkaðskönnun – Hvernig finnst þér þjónustan?Mikilvægt að Reykjanesbær haldi vinabæjarsamstarfi áframNá ekki að koma öllum farþegum út úr flugvélumBýður upp á ferðir á brekkusöng þjóðhátíðar í Eyjum – “Stanslaust stuð í sólarhring!”Guðmundur Auðun spilar um Íslandsmeistaratitil í póker – “þarf [...]