Nýjast á Local Suðurnes

Fór nokkrar veltur eftir útafakstur á Reykjanesbraut

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ökumaður sem var á ferð eftir Reykjanesbraut fyrr í vikunni missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún fór út af veginum og valt allt að fimm veltur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, var að taka fram úr annarri bifreið þegar óhappið varð. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á bráðadeild í Fossvogi en meiðsl hans reyndust ekki vera eins alvarleg og talið var í fyrstu.

Annar ökumaður missti einnig stjórn á bifreið sinni á Reykjanesbrautinni með þeim afleiðingum að hún fór utan í vegrið og sat föst milli víranna. Sá ökumaður slapp með minni háttar meiðsl.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að fleiri umferðaróhöpp hafi orðið í umdæminu á síðustu dögum þar sem umtalsvert tjón hefur orðið á bifreiðum en engin meiri háttar slys á fólki.

Þá varar Vegagerðin við því á vef sínum að hálkublettir séu víða á Suðurlandi, þar með talið á Reykjanesbraut.