sudurnes.net
Fólk gangi ekki að gosstöðvunum - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu þar sem það er ítrekað að fólk leggi ekki í göngu að gosstöðvunum. Samkvæmt tilkynningunni eru um 9-10 kílómetrar að svæðinu og því væri um 20 kílómetra göngu að ræða, yfir afar erfitt svæði. Tilkynning lögreglu í heild: Smá upplýsingar um staðsetningu gossins sem verður vonandi til þess að fólk hugsi sig 4 sinnum um áður en það leggur af stað. Það eru um 9-10 km frá Reykjanesbraut að gosstöðvunum og þar af leiðandi 9-10 km líka til baka, sem gerir 18-20 km í heildina. Fyrstu 500 metrarnir eru á sæmilegum stíg en svo tekur við gróft úfið hraun sem er afar erfitt yfirferðar. Gera má ráð fyrir því að það taki vanan göngumann um 4-5 klukkustundir að ganga þessa leið sem er alls ekki fyrir hvern sem er. Í augnablikinu er ekki nema 2 stiga hiti og blautt og svo fer að frysta eftir morgundaginn sem gerir gönguna gríðarlega krefjandi. Við höfum því miður þurft að kalla út þyrlu í kvöld til að sækja göngumann sem varð úrvinda, kaldur og skelkaður á miðri leið að gosinu. Endilega íhugið þetta áður en þið farið af stað, það eru að koma jól og [...]