sudurnes.net
Flytja hælisleitendur á Ásbrú - Local Sudurnes
Útlend­inga­stofn­un hef­ur sagt upp leigu á Víðinesi, hús­næði í eigu Reykja­vík­ur­borg­ar, sem stofn­un­in fékk til af­nota fyr­ir hæl­is­leit­end­ur. Um 50 hælisleitendum sem dvöldu í Víðinesi var komið í önnur hús, þar á meðal á Ásbrú. Samkvæmt heimildum Suðurnes.net mun vel á annan tug hælisleitenda hafa verið útvegað húsnæði á gistiheimilum á Ásbrú, en sú tala fékkst þó ekki staðfest hjá Útlendingastofnun fyrir birtingu fréttarinnar. Heimildir Suðurnes.net herma einnig að um sé að ræða einhleypa einstaklinga sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi, en heildarfjöldi umsókna um alþjóðlega vernd á fyrstu sex mánuðum ársins er 500 en það eru um 80 prósent fleiri umsóknir en bárust á fyrri helmingi síðasta árs. Áætlar Útlendingastofnun að umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi geti farið upp fyrir 2.000 á árinu, samkvæmt Vísi.is. Meira frá SuðurnesjumÞjóðverjar æfa á Eurofighter Typhoon orrustuþotum hér á landiFarþegar um Keflavíkurflugvöll komnir yfir sex milljónir í árKarpað um snjómokstur á samfélagsmiðlumTekin með kókaín í endaþarmi og leggöngumMark Tryggva Guðmundssonar gegn Leikni F. fer í sögubækurnarHeimildarmynd HS Orku – Borverkefnið IDDP-2 útskýrt á mannamáliAlbert sæmdur fálkaorðuMæðgur teknar með kókaín í flugstöðinniVilja auka og styrkja tengsl Reykjanesbæjar og vinahéraðsins XianyangAlma býður 50% lækkun á leigu vegna Covid-19