Fluttur alvarlega veikur á HSS eftir neyslu amfetamíns
Karlmaður var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir að hann veiktist hastarlega. Hann kvaðst hafa neytt amfetamíns. Í fórum hans fundust sprautur, nálar og meint fíkniefni.
Í bifreið sem var stöðvuð vegna gruns um að ökumaður æki undir áhrifum fíkniefna fannst meint amfetamín og játaði farþegi að eiga efnin. Í húsnæði í umdæminu, sem leitað var í að fenginni heimild, fundust kannabisefni og játaði húsráðandi eign sína á þeim.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þá framvísaði karlmaður pakkningu með hvítu dufti í þegar lögregla hafði tal af honum fyrir utan skemmtistað.