sudurnes.net
Fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann eftir mótorhjólaslys - Local Sudurnes
Mótorhjólaslys varð í gærmorgun á Nesvegi, nærri Golfklúbbi Grindavíkur þegar maður missti stjórn á hjóli sínu og það hafnaði utan vegar. Hann var fluttur á Landspítalann þar sem kom í ljós að hann er mikið slasaður, þó ekki lífshættulega. Annar aðili sem var í för með hinum fyrrnefnda missti einnig stjórn á sínu mótorhjóli við atvikið þannig að það skall á hliðina. Sá slapp með skrekkinn. Áður hafði orðið árekstur tveggja bifreiða við gatnamót Grænásbrautar og Flugvallabrautar. Ökumaðurinn sem olli árekstrinum með því að virða ekki stöðvunarskyldu játaði ölvunarakstur og handtók lögreglan á Suðurnesjum hann. Þá reyndist hann vera sviptur ökuréttindum. Ökumaður og farþegi hinnar bifreiðarinnar voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Þá urðu tvö umferðaróhöpp þar sem ökumennirnir létu sig hverfa áður en lögregla kom á vettvang. Annars vegar var um að ræða bílveltu á Vatnsleysustrandarvegi og hins vegar aftanákeyrsla á Reykjanesbraut. Lögregla rannsakar málin. Meira frá SuðurnesjumTjónið vegna óveðursins einna mest á ReykjanesiBonneau sleit hásin í hægri fæti – Stendur til boða að vera áfram í NjarðvíkUngar stúlkur fluttar á sjúkrahús eftir neyslu sælgætis sem innihélt fíkniefniVegavinnufólk í lífshættu – Hraðakstur vegfarenda skapar stórhættuÝmis vandamál fylgja rafmagnsleysi – Notendur hvattir til að hafa sambandFerðamenn veltu buggy-bíl við [...]