sudurnes.net
Fluttur á Landspítala eftir reiðhjólaslys - Local Sudurnes
Karlmaður rotaðist þegar hann féll af reiðhjóli sínu á Krísuvíkurvegi um helgina. Hann hjólaði á grjót með þeim afleiðingum að hann skall í malbikið. Hann hlaut meðal annars meiðsl í andliti og var fluttur á Landspítala til aðhlynningar. Þá varð ung stúlka fyrir því óhappi, í síðustu viku, að hjóla á vegg skólahúss í Vogum og handleggsbrotna. Hafði stúlkan verið að hjóla niður brekku en ekki náð að stöðva hjólið í tæka tíð með fyrrgreindum afleiðingum. Hún var flutt á spítala þar sem myndatökur leiddu í ljós að hún hafði brotnað á báðum handleggjum við höggið. Þá meiddist ökumaður þegar bifreið hans fór utan í vegrið á Reykjanesbraut og endaði utan vegar. Hann fann til verkja og var fluttur til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Meira frá SuðurnesjumFótbrotnaði í fjórhjólaslysiTveir fluttir á sjúkrahús eftir árekstur á GarðvegiÖkumaður bifhjóls féll í götunaErlendir aðdáendur norðurljósa ollu árekstri á GrindavíkurvegiViðræður Reykjanesbæjar við lánadrottna ganga hægtGrunur um Keflavíkurflugvöllur sé nýttur til að smygla fólki til Bandaríkjanna og KanadaMannlausar bifreiðar í árekstriFluttur á bráðamóttöku Landspítala eftir mótorhjólaslysUmdeildasta mark íslenskrar knattspyrnusögu rifjað upp – Myndband!Flutningabíll valt á Reykjanesbraut