Nýjast á Local Suðurnes

Flutt á Landspítala eftir að hafa gengið í veg fyrir strætó

Tvö umferðarslys urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í öðru þeirra ók ökumaður, sem ekki virti stöðvunarskyldu, inn í hlið bifreiðar. Ökumaður þeirrar bifreiðar hlaut áverka á höfði en sem betur fer ekki alvarlega þó.

Þá slasaðist gangandi vegfarandi sem gekk í veg fyrir strætisvagn.  Viðkomandi var flutt á Landspítala í Fossvogi en meiðsl hennar reyndust ekki mjög alvarleg.