sudurnes.net
Flugvöllur í landi Voga talinn besti kosturinn að mati Rögnunefndar - Local Sudurnes
Starfshópur sem hafði það að markmiði að skoða kosti undir innanlandsflugvöll á höfuðborgarsvæðinu, svokölluð Rögnunefnd, hefur komist þeirri niðurstöðu að Hvassahraun væri besti kosturinn undir flugvöll. Miðað við niðurstöður starfshósins yrði flugvöllurinn best staðsettur í landi Voga, rétt við mörk sveitarfélagsins og Hafnarfjarðar. Starfshópurinn skilaði ítarlegri skýrslu en fjórir kostir voru skoðaðir, Hólmsheiði, Bessastaðanes, Löngusker auk breyttrar útfærslu á starfseminni í Vatnsmýri. Hólmsheiðin var talin vera sísti valkosturinn og Hvassahraun sá besti eins og áður segir. Í skýrslunni segir að áætlaður stofnkostnaður flugvallar og bygginga sem tækju við allri starfsemi flugvallar í Vatnsmýri sé um 22 milljarðar kr. og meðalaksturstími að/frá búsetumiðju er um 19 mín. sem er 8 mín. lengra en að/frá Vatnsmýri, akstursvegalengd er um 21 km. Ásýnd á mannvirki yrði í lágmarki Ítarlega er farið yfir þau áhrif sem flugvöllur í Hvassahrauni myndi mögulega hafa á umhverfið, en næðu þessar tillögur fram að ganga yrði flugvöllurinn staðsettur innan fjarsvæðis vatnsverndar og segir í skýrslunni að huga þurfi að því hvaða skilyrði þarf að uppfylla varðandi framkvæmdir og rekstur á skilgreindu vatnsverndarsvæði. Einnig segir að völlurinn yrði staðsettur nokkuð utan byggðar þannig að ásýnd á mannvirki frá íbúðarbyggð yrðu í lágmarki. Fjarlægð frá brautarenda í nálæga frístundabyggð í Hvassahrauni yrði 1,6 km. [...]