sudurnes.net
Flugumferðarstjórar enn veikir - Ekkert flogið frá Keflavíkurflugvelli í nótt - Local Sudurnes
Vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra verður þjónusta á Keflavíkurflugvelli annan daginn í röð takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug frá 02:00 í nótt til 07:00 í fyrramálið. Ástæðan er að tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vaktinni í nótt eru veikir og vegna yfirvinnubanns fást ekki flugumferðarstjórar til afleysinga. Á meðan á takmörkuninni stendur eru 16 flugvélar áætlaðar til komu frá Norður-Ameríku og átta til brottfarar til Evrópu. Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og Samtök Atvinnulífsins (SA) fyrir hönd Isavia standa nú í kjaraviðræðum og hefur þeim verið vísað til ríkissáttasemjara. Viðræður hafa staðið yfir frá því í nóvember en síðasti fundur var haldinn 20. maí síðastliðinn. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til næsta fundar í viðræðunum. Yfirvinnubann FÍF hefur staðið yfir frá 6. apríl. Farþegar sem eiga bókað flug á þessum tíma eru hvattir til að fylgjast með flugáætlunum á www.kefairport.is eða vef síns flugfélags. Meira frá SuðurnesjumEkkert áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll í kvöld og nóttLesið fyrir hunda á laugardagTaktu jólamyndina í gamaldags jólastofuSAS ætlar í harða samkeppni við Icelandair og WOW – Boða flug frá Keflavík til KaupmannahafnarVinnu við fyrsta áfanga ungmennagarðsins í Grindavík að ljúkaAðeins tæp 9% kusu í rafrænum íbúakosningumJarðskjálftar á Reykjanesi – Allar helstu upplýsingar og tenglarÍbúðalánasjóður hefur sett 90 [...]