Flugmenn Icelandair velkomnir í starfsviðtal hjá WOW-air
Icelandair sagði á dögunum upp 115 flugmönnum, auk þess sem félagið færði 70 flugstjóra niður í stöðu flugmanns. Uppsagnirnar taka gildi í haust.
Skúli Mogensen, forstjóri WOW-air, segist vilja bjóða þeim flugstjórum sem sagt var upp störfum hjá Icelandair að fljúga fyrir WOW-air, að því gefnu að þeir standist hæfniskröfur WOW air. Hann vilji að minnsta kosti bjóða þeim í viðtal.
„Heildarstarfsmannafjöldinn hjá okkur er um 1100 og við myndum vilja bjóða öllum þessum flugmönnum í viðtal að minnsta kosti,“ segir Skúli Mogensen, forstjóri WOW air á Bylgjunni „Við gætum hæglega ráðið fleiri en hundrað flugmenn á næstu mánuðum.“