Nýjast á Local Suðurnes

Flugköttur reyndi að ferðast um landið á eigin vegum

Lögreglunni á Suðurnesjum barst á fimmtudag tilkynning frá öryggisgæslunni á Keflavíkurflugvelli að köttur hefði sloppið úr búri við flugvél Icelandair á vellinum. Ekki varð úr frekari ferðalögum kisa á eigin vegum því þegar lögreglumaður mætti á staðinn höfðu starfsmenn hlaðdeildar flugfélagsins haft snarar hendur og gómað hann.

Kötturinn var því kominn aftur í búrið sem hafði verið lokað vel og vandlega svo hann endurtæki ekki leikinn.