Nýjast á Local Suðurnes

Flugeldasýning og blysför á þrettándagleði í Reykjanesbæ

Þrettándagleðin verður með hefðbundnum hætti í Reykjanesbæ, föstudaginn 6. janúar, en hún hefst á luktarsmiðju í Myllubakkaskóla og endar á flugeldasýningu og brennu í boði Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

Dagskráin í heild sinni:

Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla
Áður en dagskrá hefst, frá kl. 17-18, verður boðið upp á spennandi luktarsmiðju í Myllubakkaskóla. Fólk er beðið um að koma með krukku með sér að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði á Hafnargötu. Allt efni og ljós (fyrir utan krukkuna sjálfa) fæst á staðnum. Verð fyrir efni er kr. 300 og greiðist með peningum á staðnum. Gengið er inn um inngang við Suðurtún. Allir velkomnir.

Blysför að hátíðarsvæði
Klukkan 18:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar, álfa, púka og „luktarbarna“ frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 8. Þar tekur Grýla gamla ásamt fleiri fjölskyldumeðlimum á móti hersingunni og álfakóngur og –drottning ásamt álfakór hefja upp raustina og syngja þrettándasöngva. Grýla tekur svo lagið með börnununum og púkar og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.

Brenna, kakó og piparkökur
Þrettándabrennan verður á sínum stað Bakkalág og gestir geta yljað sér á heitu kakói og piparkökum.

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes
Það fer svo vel á því að ljúka dagskrá og kveðja jólin með flugeldasýningu að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes sem reikna má með að verði stórfengleg að vanda.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Júdódeild UMFN, Björgunarsveitin Suðurnes og Jólahljómsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.

Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.