sudurnes.net
Flugdólgur í ham sparkaði í gegnum salernishurð á lögreglustöð - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hafði í fyrradag afskipti af flugfarþega, sem var að koma með flugi frá Riga í Lettlandi, vegna kvartana um dólgslæti hans í fluginu. Hann hafði látið ófriðlega og áreitt aðra farþega. Flugáhöfnin hafði tekið af honum viskí flösku á leiðinni og var hann mjög ölvaður þegar lögreglumenn fylgdu honum frá vélinni. Var tekin ákvörðun um að færa hann á lögreglustöð til að láta hann sofa út sér vímuna. Í lögreglubifreið á leiðinni var maðurinn mjög æstur og lét illa. Var hann vistaður í fangaklefa þar sem hann lét ekki af hegðun sinni. Nokkru síðar var honum hleypt á salerni á lögreglustöðinni og sparkaði hann þá í gegnum salernishurðina. Það var ekki fyrr en nokkrum tímum síðar að hann náði áttum. Var þá tekin af honum skýrsla og hann látinn laus. Meira frá SuðurnesjumFlugvél snúið við eftir að farþegi lét ófriðlegaBeit hjálpsaman lögreglumann í læriðGæti Reykjavík verið í verri málum ef köttur sæti í embætti borgarstjóra ?Farþegum boðin áfallahjálp eftir að flugdólgur lét illum látum um borð í vél WOW-airSvaf ölvunarsvefni undir stýri við lögreglustöðina – Fékk að sofa lengur í fangaklefaPar í gæsluvarðhaldi vegna gruns um gróf kynferðisbrot gegn ungum börnumBeraði sig fyrir framan flugfarþega – Sektaður [...]