Nýjast á Local Suðurnes

Flöskuþjófar á ferð í Garði og dósaþjófar í Reykjanesbæ

Flöskuþjófar sem voru á ferðinni í Garði í vikunni virðast hafa haft eitthvað upp úr krafsinu. Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um þjófnað á átta eða níu svörtum ruslapokum sem höfðu að geyma tómar gosflöskur.  Þá kom annar íbúi úr sömu götu á lögreglustöð og tilkynnti þjófnað á tuttugu pokum, fullum af flöskum, sem hann hafði safnað saman aftan við hús sitt. Ekki er vitað hver eða hverjir þarna voru að verki.

Greint var frá því á Suðurnes.net á dögunum að fjölmargir einstaklingar í Reykjanesbæ hafi undanfarna daga kvartað undan og varað við bíræfnum dósaþjófum sem freista þess að drýgja tekjurnar með því að stela dósum sem íbúar sveitarfélagsins geyma utandyra.