sudurnes.net
Flogið til 66 borga frá Keflavíkurflugvelli í sumar - Local Sudurnes
Ferðavef­ur­inn Túristi hefur tekið saman ferðamöguleika fólks til og frá Keflavíkurflugvelli í sumar og fram á haust. Sam­kvæmt sum­aráætl­un flug­fé­lag­anna, sem er í gildi frá lok­um mars til enda októ­ber­mánaðar, verður flogið til 66 borga í Norður-Am­er­íku og Evr­ópu en þar af eru tíu nýj­ar borgir á listanum. Við þetta bæt­ist svo leiguflug á veg­um ferðaskrif­stofa. Flug­fé­lög­um sem fljúga hingað til lands hef­ur fjölgað mikið á síðustu árum. Árið 2007 flugu Íslend­ing­ar oft­ar til út­landa en áður. Þá voru flug­fé­lög­in á Kefla­vík­ur­flug­velli fimm. Í sum­ar verða áætl­un­ar­ferðir á veg­um tutt­ugu flugfélaga í gegnum Keflavíkurflugvöll. Á vef Túrista er að finna kort með áfangastöðunum sem flogið er til frá Keflavíkurflugvelli auk þess em þar er að finna ítarlegri tölfræðilegar upplýsingar um þróunina í áætlunarflugi frá árinu 2007. Meira frá SuðurnesjumLars og Heimir halda Njarðvíkingunum í landsliðshópnumLækka fasteignaskatt og fráveitugjaldTíu milljarðar króna í framkvæmdir á Reykjanesbraut á árunum 2019-2022Boða til hádegisfundar vegna borloka Íslenska djúpborunarverkefnisinsFundu breta og þökkuðu fyrir hjálpinaTæplega 66 milljónir króna í verkefni á ReykjanesiGrúb Grúb vill risaskjá í skrúðgarðinn yfir EM í fótboltaBleikja úr Sandgerði komin í verslanir erlendis á innan við sólarhringStarfsmenn Brunavarna Suðurnesja fóru í vel heppnaða námsferð til FinnlandsUnited Silicon hefur tíu daga til að greiða ÍAV [...]