Flogið til 66 borga frá Keflavíkurflugvelli í sumar
Ferðavefurinn Túristi hefur tekið saman ferðamöguleika fólks til og frá Keflavíkurflugvelli í sumar og fram á haust. Samkvæmt sumaráætlun flugfélaganna, sem er í gildi frá lokum mars til enda októbermánaðar, verður flogið til 66 borga í Norður-Ameríku og Evrópu en þar af eru tíu nýjar borgir á listanum. Við þetta bætist svo leiguflug á vegum ferðaskrifstofa.
Flugfélögum sem fljúga hingað til lands hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Árið 2007 flugu Íslendingar oftar til útlanda en áður. Þá voru flugfélögin á Keflavíkurflugvelli fimm. Í sumar verða áætlunarferðir á vegum tuttugu flugfélaga í gegnum Keflavíkurflugvöll.
Á vef Túrista er að finna kort með áfangastöðunum sem flogið er til frá Keflavíkurflugvelli auk þess em þar er að finna ítarlegri tölfræðilegar upplýsingar um þróunina í áætlunarflugi frá árinu 2007.