Nýjast á Local Suðurnes

Fjórtán teknir á of miklum hraða

Fjórtán ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Sá sem hraðast ók mældist á 149 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Viðurlög við slíku broti eru 210 þúsund króna sektargreiðsla og ökuleyfissvipting í einn mánuð. Einn þessara fjórtán var einnig grunaður um ölvunarakstur.

Fjöldinn verður að teljast í hærra lagi þar sem aðstæður til hraðaksturs eru langt frá því að vera með besta móti, en illa hefur gengið að hálkuverja vegi að undanförnu.

Þá voru fáeinir teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og reyndist einn þeirra vera án ökuréttinda. Jafnframt vorur skráningarnúmer fjarlægð af þremur bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar í umferðinni.