sudurnes.net
Fjórir yfir fjórum á rúmum klukkutíma - Local Sudurnes
Fjórir jarðskjálftar hafa mælst yfir 4 að stærð í hrinunni sem nú gengur yfir við Fagradalsfjall. Stærsti skjálftinn mældist 4,6 að stærð en hann varð klukkan 8:21 og fannst viða, samkvæmt vef Veðurstofunnar. Alls hafa yfir 1500 skjálftar mælst síðasta sólahringinn og búast má við áframhaldandi jarðskjálftavirkni næstu daga og er fólki ráðlagt frá því að ferðast um á svæðinu þar sem auknar líkur eru á grjóthruni. Þá munu Almannavarnir funda með vísindamönnum Veðurstofunnar og Háskóla Íslands um stöðuna. Meira frá SuðurnesjumTveir snarpir með sekúndu millibiliFjórir skjálftar yfir 4 að stærð í nóttLjósanótt: Gamli bærinn mun iða af lífi og tónlist í kvöldSamið um rekstur heilsugæslu í ReykjanesbæKostar milljarð að breyta dráttarbraut í listasafnLeigu­verð hækkaði um 46% á Suður­nesj­umBaráttan um siliconið – Krefjast lög­banns á yf­ir­töku Ari­on BankaHandtekinn í Leifsstöð með mikið magn af sterumByggja 800 nýjar íbúðir í VogumNjarðvíkingar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn á heimavelli í dag