sudurnes.net
Fjórir teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur þurft að hafa afskipti af nokkrum ökumönnum vegna vímuaksturs á undanförnum dögum. Lögreglumenn komu meðal annars að bifreið sem ekið hafði verið á grindverk í Grindavík. Einn maður var í bílnum og var hann sjáanlega mjög ölvaður. Hann var færður á lögreglustöð. Bifreiðin var óökuhæf eftir atvikið, loftpúði sprunginn út og hjólabúnaður brotinn. Þá veittu lögreglumenn annarri bifreið athygli þar sem henni var ekið yfir vegkant. Ökumaðurinn hafði, auk áfengis, neytt fíkniefna, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu. Tveir ökumenn til viðbótar voru einnig handteknir og færðir á lögreglustöð sökum vímuefnaaksturs. Meira frá SuðurnesjumMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnLögregla og Brunavarnir æfa forgangsaksturGeldingadalagos kostaði Grindavíkurbæ milljónatugiFlug her­þota vakti ofsa­hræðslu meðal barna frá ÚkraínuNýr flokkur vill endurgjaldslausar skólamáltíðirSamkaup gefur starfsfólki 150 milljóna bónusEkki óhætt að flytja til Grindavíkur – Nætureftirlit af skornum skammtiVilja láta rannsaka möguleg tengsl krabbameina og mengunar á SuðurnesjumAuglýsa eftir rekstraraðila skautasvells