Nýjast á Local Suðurnes

Fjórir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði slíðastliðinn laugardag viðurkenndi að eiga meint kannabisefni og þurrkaða sveppi sem fundust í bifreið hans. Þá var hann grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Þá kemur fram í tilkynningu frá lögreglu að þrír ökumenn til viðbótar hafi verið stöðvaðir vegna gruns um fíkniefnaakstur og ók einn þeirra að auki ökuréttindalaus þar sem hann hafði áður verið sviptur réttindum.