Nýjast á Local Suðurnes

Fjórir á sjúkrahús eftir slys á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ökumenn tveggja bifreiða voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í fyrrakvöld eftir að bifreiðir þeirra skullu saman á Reykjanesbraut skammt vestan við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Báðir fundu til verkja í höndum og hnjám en höggið var það mikið að líknarbelgir í báðum bílunum sprungu út. Bílarnir voru óökufærir og fjarlægðir með dráttarbifreið.

Fyrr í vikunni höfðu tveir verið fluttir með sjúkrabifreið á HSS eftir árekstur á Grindavíkurvegi. Um var að ræða ökumann og farþega annarrar bifreiðarinnar. Meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg.