Nýjast á Local Suðurnes

Fjölskyldum sem þiggja fjárhagsaðstoð hjá Reykjanesbæ fer fækkandi

Í mars og apríl fækkaði umsóknum um endurnýjun á framfærslustyrk milli mánaða umtalsvert. Í mars voru 21 umsækjandi sem ekki endurnýjaði umsókn sína. Í apríl voru 26 umsækjendur sem ekki endurnýjuðu umsóknir sínar. Þetta kom fram á fundi Velferðarráðs Reykjanesbæjar þann 13. maí síðastliðinn.

Í mars 2016 var greitt til framfærslu kr. 14.425.608,-. Fjöldi einstaklinga/fjölskyldna var 128. Árið 2015 var í sama mánuði greitt kr. 16.948.762,- til framfærslu. Fjöldi einstaklinga/fjölskyldna var 166.

Í apríl 2016 var greitt til framfærslu kr. 12.674.916,-. Fjöldi einstaklinga/fjölskyldna var 116. Árið 2015 var í sama mánuði greitt kr. 18.531.709 til framfærslu. Fjöldi einstaklinga/fjölskyldna var 169.

Þá var farið yfir fjölda umsækjenda á biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði í Reykjanesbæ á fundinum. Fram kom að um áramót voru 119 umsækjendur á biðlista, þar á bakvið voru 93 börn. Í apríllok 2016 voru 125 umsækjendur á biðlista, þar á bakvið voru 95 börn.