Nýjast á Local Suðurnes

Fjölga þarf landamæravörðum á Keflavíkurflugvelli

Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir allar líkur á að fjölga þurfi starfsfólki á Keflavíkurflugvelli vegna ákvöðunar innanríkis- og dómsmálaráðherra Evrópu, sem ákváðu í dag að herða landamæragæslu á ytri landamærum Schengensvæðisins. Þettka kom fram í kvöldféttum Stöðvar 2.

„Ég held að það fari að koma að því að við förum rækilega yfir það hvort við höfum nægan mannskap á Keflavíkurflugvelli. Við finnum það á þessum fundum að við erum að fara í þá átt að það verður að gera betur þarna og við verðum þá að vera tilbúin til að axla þá ábyrgð sem á okkur hvílir í því. Þannig að ég held að það blasi við á næstunni,“ segir Ólöf Nordal.