sudurnes.net
Fjárlagafrumvarp 2018: Ekki lögð áhersla á framkvæmdir á Reykjanesbraut - Local Sudurnes
Gert er ráð fyrir að tæplega 18 milljarðar króna fari í framkvæmdir og viðhald vega, í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018, sem lagt var fram í dag. Meðal stærstu verkefna verða Dýrafjarðargöng, nýr kafli hringvegarins í Berufjarðarbotni og ný Vestmannaeyjaferja. Samkvæmt gildandi samgönguáætlun er ekki gert ráð fyrir að farið verði í framkvæmdir á Reykjanesbraut fyrr en árið 2019, utan þess að tengja hringtorg á Fitjum við Hafnarveg, en um 100 milljónir króna hafa verið eyrnamerktar þeim framkvæmdum á samgönguáætlun fyrir árið 2018. Á árunum 2019 – 2022 verða settir 3,5 milljarðar króna í framkvæmdir frá Fitjum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar og 5,3 milljarðar króna í framkvæmdir sunnan Hafnarfjarðar. Alls stendur því til að setja 9,8 milljarða króna í framkvæmdir á Reykjanesbraut á næstu árum. Rétt er að taka fram að samgönguáætlun 2019-2022 er enn í vinnslu sem þingsályktunartillaga og hefur ekki enn verið samþykkt af Alþingi. Þá er, í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2018, gert ráð fyrir auknum útgjöldum til vegamála sem gætu numið 1,2 ma.kr. Um er að ræða viðbótarfjármagn vegna brýnna framkvæmda sem ekki var gert ráð fyrir í forsendum fjárlaga. Þar á meðal eru framkvæmdir vegna fjölgunar ferðamanna og vaxandi álags á þjóðvegum landsins, sem eiga að stuðla [...]