sudurnes.net
Fingralangir ferðalangar stálu áfengi af ferðalöngum á ferðalagi - Local Sudurnes
Erlendir ferðamenn urðu uppvísir að því að stela frá erlendum ferðamönnum á bílaleigu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem stolið var frá, hingað kominn með fjölskyldu sinni, var að undirrita bílaleigusamninginn þegar einn úr þriggja manna hópi, sem einnig var inni á bílaleigunni teygði sig í fríhafnarpoka þess fyrrnefnda og tók úr honum þrjár áfengisflöskur og annan varning. Myndbandsupptökur úr eftirlitsmyndavél sýndu athæfið svo ekki var um villst. Þegar þjófnaðurinn uppgötvaðist voru þremenningarnir á bak og burt á bíl sem þeir höfðu tekið á leigu. Starfsmaður bílaleigunnar hafði samband við þá og tjáði þeim að sést hefði til eins þeirra taka varning úr pokanum. Kvaðst fólkið þá ætla að snúa við. Þegar bið varð á því var aftur reynt að ná sambandi við það en þá var búið að slökkva á farsímanum. Málalok biðu því þar til að þremenningarnir skiluðu bílaleigubílnum. Meira frá SuðurnesjumStakk lögreglu af en skildi fullan bíl af þýfi eftirSprengdu flugelda inni í nýbygginguKöstuðu flugeldum upp á svalir íbúðarhússKvartanir um mengun þrátt fyrir að slökkt sé á ofni – 3500 vilja kísilver burt úr HelguvíkÍbúar hreinsa Innri-Njarðvíkurhverfi – Förguðu 11 tonnum af rusli á síðasta áriMættu ekki á æfingar og boluðu Margréti burtFögnuðu flottum breytingum á [...]