sudurnes.net
Fimmtán kærðir fyrir of hraðan akstur - Local Sudurnes
Fimmtán ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 159 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þar var á ferðinni erlendur ferðamaður sem þarf að greiða 230 þúsund krónur í sekt. Þá voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna – eða ölvunarakstur og skráningarnúmer voru fjarlægð af sex bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ítryggðar. Tveir ökumenn til viðbótar hinum ofangreindu óku á dekkjum sem öll voru negld. Meira frá SuðurnesjumÓk á 162 kílómetra hraða á ReykjanesbrautSektaður um 230 þúsund krónur vegna hraðakstursStöðvuðu 150 ökumennÖkumenn í vikunni: Fullir á alltof miklum hraða og á óskoðuðum eða ótryggðum bílumÓk á ofsahraða fram úr lögreglubifreið á ReykjanesbrautÓk of hratt undir áhrifum fíkniefna – Sviptur á staðnumGripnir við að tala í síma án handfrjáls búnaðarFær 230 þúsund króna sekt fyrir hraðaksturGreiddi tæplega 70.000 króna hraðasekt á staðnumÁrekstrar og dóp í umferðinni