sudurnes.net
Fimm mest lesnu fréttir ársins - Gleðilegt ár! - Local Sudurnes
Um leið og við óskum lesendum okkar gleðilegs árs og farsældar á því komandi er gaman að segja frá því að árið 2023 var það besta frá upphafi hvað varðar lestur á sudurnes.net. Hér fyrir neðan má sjá þær fimm fréttir sem fengu mesta lesturinn á liðnu ári. 5. Þáðu ekki launahækkun Bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar áttu möguleika á smá launahækkun um mitt ár, Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi samfylkingar, bar upp þá tillögu að bæjarráðsfulltrúar féllu frá fyrirhuguðum launahækkunum samfara hækkun þingfararkaups. Tillagan var samþykkt samhljóða. 4. Viðbúnaður í Vogum Lög­regl­an á Suður­nesj­um var með viðbúnað í Vog­um í byrjun október og svo virt­ist sem verið væri að leita að ein­hverju. 3. Mótmæli við Fitjar Flóttafólk stillti sér upp í friðsæl mótmæli við Fitjar í Njarðvík í byrjun október sem vöktu mikla athygli. 2. Varnargarðamyndir Vinna við varnargarða við Svartsengi gekk mjög vel og voru garðarnir klárir í lok desembermánaðar. Myndir af verkefninu vöktu mikla athygli. 1. Flestir kíktu á peningafrétt Nokkrir aðilar voru handteknir á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins eða handteknir vegna gruns að vera með illa fengið fé á leið úr landi, samkvæmt tölum lögreglu. Meira frá SuðurnesjumFótboltinn skilaði hagnaði í VogumMethagnaður hjá leigurisa – Undirbúa skráningu á markaðMeirihlutinn: Áframhaldandi [...]