Nýjast á Local Suðurnes

Fimm handteknir eftir árekstur í Sandgerði

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Rúmlega tvítugur ökumaður sem ók inn í hlið bifreiðar í Sandgerði um helgina reyndist aldrei hafa tekið bílpróf og var þar að auki ölvaður og undir áhrifum fíkniefna. Fjórir farþegar voru í bifreiðinni sem tjóninu olli og voru þeir einnig undir áhrifum áfengis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi, en lögreglan á Suðurnesjum hafði fljótlega upp á honum og hinum sem í bifreiðinni voru þegar ákeyrslan átti sér stað. Voru allir handteknir og færðir á lögreglustöð. Þar játaði ökumaðurinn sök við yfirheyrslur. Engin slys urðu á fólki.