sudurnes.net
Fíkniefnasali handtekinn á Suðurnesjum - Local Sudurnes
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum lagt hald á umtalsvert magn fíkniefna. Í húsleit sem gerð var í umdæminu, að fenginni heimild, var meðal annars lagt hald á amfetamín, kókaín, e – töflur, hass og mikið magn lyfseðilsskyldra lyfja. Í bifreið í eigu húsráðanda fannst einnig talsvert af efnum. Viðkomandi viðurkenndi eign sína á þeim og jafnframt að hafa stundað sölu á fíkniefnum og lyfjum. Þá haldlagði lögregla tíu 200 millilítra flöskur með kannabisolíu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hafði erlendur ferðamaður komið með flöskurnar í farteski sínu til landsins og kvaðst ætla að taka olíuna inn sér til heilsubótar. Hann hafði verið stöðvaður af tollgæslunni við komuna til landsins. Meira frá SuðurnesjumUnited Silicon hefur tíu daga til að greiða ÍAV milljarðÞessar takmarkanir tóku gildi á miðnættiTekinn á leið til Grænlands með hass í kílóavísVar að stilla útvarpið og velti bílnumVerkfærum stolið úr bílskúrViðurkenndi eign á kannabisplöntumVilja tvöfalda laxeldið í VogumArnar Helgi setti Íslandsmet í DohaVilja setja 200 milljónir króna í GrindavíkurvegUm 200 iðkendur Kkd. Njarðvíkur gerðu sér glaðan dag – Myndir & myndband!