Fíklar hysji upp um sig og fargi notuðum sprautum
Reglulega gerist það að sprautunálar finnast utandyra og hafa tvö slík mál komið upp það sem af er degi hér á Suðurnesjum að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. Í færslu á Facebook segir lögregla að mikilvægt sé að fólk viti hvernig best er að farga svona hlutum.
Í færslunni, sem finna má hér fyrir neðan, eru leiðbeiningar um hvernig borgarar skulu bregðast við finnist svona hlutir á víðavangi, en lögregla tekur einnig fram að best væri þó að þeir sem skilja þetta eftir á víðavangi hysji upp um sig og passi sig á að hirða þetta upp.