sudurnes.net
Ferðamenn slösuðust í flugstöðinni - Local Sudurnes
Tveir erlendir ferðamenn slösuðust í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um helgina. Annað atvikið varð með þeim hætti að kona datt á andlitið þegar hún var að ganga í gegnum Fríhöfnina. Töluvert blæddi úr andliti hennar og var talið að hún hefði nefbrotnað. Hún var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Í hinu tilvikinu féll kona í rúllustiga. Hún var með nokkur blæðandi sár á höfði eftir óhappið og kvartaði undan verkjum. Hún var einnig flutt á HSS. Loks fór betur en á horfðist þegar vegfarandi hljóp á hlið bifreiðar á ferð í Reykjanesbæ. Viðkomandi hruflaðist á hendi en dæld kom í bílinn við atvikið. Meira frá SuðurnesjumFótbrotnaði í fjórhjólaslysiÖkumaður bifhjóls féll í götunaTorfæruhjól fældi hest og knapi féll af bakiRotaðist við að færa þakplötuFéll út úr hópferðabifreið og slasaðist á fætiTvö tjaldsvæði á teikniborðinu í ReykjanesbæUngur drengur féll ofan í gjótu við Bláa lónið – Fluttur á HSS til aðhlynningarLaga þrep við Brimketil – “Tökum hratt og örugglega á nýjum áskorunum”Fékk sér lúr undir stýri með landaflöskuna í fanginuBoraði í gegnum höndina á sér