Ferðamenn í vandræðum á Suðurstrandavegi
Dagurinn hefur verið nokkuð annasamur hjá björgunarsveitum landsins. Víða hefur verið töluverð ófærð og hefur fjöldi ökumanna fengið aðstoð þeirra. Verst var ástandið á Suðvesturhorninu, á svæðinu frá Brynjudal í botni Hvalfjarðar suður í Krísuvík og á Suðurstrandavegi. Þar sátu tugir bíla fastir og var ástandið víða erfitt.
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík tók þátt í að koma manni og tveimur börnum til byggða í dag, en þau sátu föst í bíl á Suðurstrandaveginum sem er ófær um þessar mundir og hafa margir ferðamenn fest litla bílaleigubíla á veginum.