sudurnes.net
Fengu ekki að fara í flug vegna ölvunar - Tóku afskiptum lögreglu illa - Local Sudurnes
Nokkur erill var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um helgina af völdum ölvaðra flugfarþega. Í gærkvöld barst beiðni um aðstoð vegna fimm farþega sem fengu ekki að fara um borð í flug til Varsjár vegna ölvunar. Lögregla vísaði þeim niður í komusal, öllum utan einum sem var ofurölvi og neitaði að yfirgefa flugstöðina. Hann var því handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var látinn sofa úr sér. Áður hafði karlmaður sem ætlaði um borð í flugvél á leið til Vilnius verið stöðvaður vegna ölvunar. Fylgdu lögreglumenn honum út úr flugstöðinni. Loks var tilkynnt um par sem var með óspektir í brottfararsal. Fólkinu var tilkynnt að það færi ekki með fyrirhuguðu flugi og tók það þeirri tilkynningu illa. Lögregla færði parið á lögreglustöð þar sem því var veitt tiltal vegna hegðunarinnar. Meira frá SuðurnesjumFluttur á bráðamóttöku Landspítala eftir fjórhjólaslysÞjófar létu greipar sópa í verslun FjölskylduhjálparFlugstjóri hyggst kæra farþegaÖlvaður týndist í flugstöðinniTekin með fíkniefni í leggöngum og endaþarmiGönguleið að gosstöðvum orðin greiðfærLögregla um slæma meðferð á hælisleitanda: “Vildi frekar sofa en borða”Breytingar á HSS eftir að neyðarstig tók gildiEitt fyrirtæki fékk nær allar lóðir sem boðnar voru upp í DalshverfiReiknivél leikskólagjalda komin á vefinn